HJARTA
Hjarta, Spaði, Tígull og Lauf tilheyrir bernsku margra barna. Hjarta hefur alltaf verið mitt uppáhald, fallegt að lit og formi. Prjónað úr Kambgarni og í berustykkið og hattinn er saumað í eftir á sem gefur nýja og skemmtilega ásjón og áferð. Krabbaheklið skreytir síðan kantana.