LOPI 33 komið út.8.07.2013Prjónablaðið LOPI 33 kom út í dag! Loksins, loksins er blaðið komið út. Forsíðuna prýðir kjóllinn Merla eftir Bergrós Kjartansdóttir. Í blaðinu eru 26 uppskriftir og á Bergrós 17 af þeim. | ||
Sýningin Leikverk25.09.2012Sýningin Leikverk var haldin í Gerðubergi. Þar tók Bergrós þátt. Verkin sem senda átti inn áttu á einhvern hátt að tákna leik. ,,Í verkinu mínu er ég að leika mér með sama munstrið í mjúkt efni, ull og hart efni silfur. Ég hannaði flík þar sem munstrið segir frá Norðurljósunum. Síðan smíðaði ég stóra nælu þar sem áferðin af prjóninu er steypt á silfur og sagað svo út í eins munstur og á flíkinni.'' | Vogue knitting kemur til Íslands25.09.2012Í haust kom til landsins stór hópur kvenna og örfárra karla á vegum Vogue knitting. Þeir komu í Ístex og skoðuðu verksmiðjuna og fengu gefins blaðið LOPA nr. 32 sem var nýútkomið á ensku. Mikil ánægja var með blaðið og fengu hönnuðinn Bergrós til að árita blaðið fyrir sig sem var skemmtilegt. Hér má sjá grein sem birtist síðar í blaðinu Vouge knitting um ferðina. | Sýning á Ísafirði sumarið 201125.09.2012Bergrós hélt sýningu í Heitt á prjónunum. Þar var til sýnis hönnun í handprjóni og skartgripir úr silfri. Frétt birtist um það í bæjarblaðinu Bæjarins besta og sjá má hér. Veðrið skartaði sínu fegursta þessa tíu daga sem sýningin stóð yfir og mikill fjöldi kíkti við,skoðaði sýninguna og fékk sér kaffi og kökur í leiðinni hjá Gerði. |